Já, ég er búin að hugsa þetta fram og til baka sko. Bestu vinir þínir, sem þú getur hlegið með og fíflast með eða grátið með þegar þannig liggur á þér, sem geta setið hjá þér og sagt ekki neitt ef það er það sem þarf og sem gefa þér bestu knúsin(ef maður er típan sem þarf knús:P). Einhver sem þú treystir skilyrðislaust og getur talað um allt við, sem þú elskar skilyrðislaust með göllum og öllusaman. Sem þú virðir 100% og virðir þig á móti. Einhver sem hleypur ekki í burtu þegar eitthvað er...