Fer eftir því hvað þú ert gömul. Ef þú ert ennþá í grunnskóla þá geturðu tekið latínu námskeið hjá Adastra, en einhvern veginn held ég að þú sért ekki í grunnskóla x] En já, það námskeið kostar 15 þúsund og þú gætir fengið að komast inn, námskeiðin byrjuðu á síðasta laugardag.
Æji, maður, ég passa ekki við tvær kröfur þarna, er of ung og hef ekki sent inn grein á Harry Potter þótt að ég lesi allt efni þar =( Það eru samt gerðar undantekingar á aldurstakmarkinu stundum, veit ekki með hitt.
Eru einhver sérstök skilyrði fyrir stjórnenda stöðu? Núverandi stjórnendur pikka oft út þær reglur sem þeim finnst skipta mestu máli í sambandi við stjórnendastöðuna og láta inn í =)
Já, ég hef velt þessu fyrir mér í smá tíma og bjóst við því að það kæmi bráðum tilkynning um banner keppni. En já, það væri mjög gaman að gera banner fyrir þetta áhugamál =)
Hehe, stærðfræði dæmið var sérstakt, ég ætlaði að gera dæmið erfiðara en mig vantaði bara allann vilja til að finna nógu erfitt dæmi -.- Þannig ég bara skrifaði þetta =)
Já ég dýrka þessar bækur! Ég leigði fyrstu bókina af bókasafninu eftir mánuð á biðlista -.- En ég var svo spennt að ég gerði ekki annað nema að lesa og kláraði hana sama dag x] Síðan nennti ég ekki að bíða eftir bókunum á bókasafninu, þar sem fyrsta og önnur bókin var bara komin þannig ég fór strax út í eymundson til að kaupa alla bókaseríuna! Ég var svo spennt að ég kláraði heilar fjórar bækur á met tíma hjá mér, semsagt, á einni viku! O.O Þær slá jafnvel Harry Potter bókunum við!
Annaðhvort við náttúrulega hárlitinn minn (skolllitaður) eða við dökk brúnt hár =) En já, vá þú hefur virkilega verið með svona mikið af extreme litum? Ef ég fengi mér svona rauðan lit í hárið yrði það fyrsta skiptið sem ég fengi svona liti í hárið x]
Já, ég fel nammi út um allt herbergið mitt til að enginn finni það x] Og síðan er ég auðvitað með tvílæsta tölvu, hata þegar mamma eða pabbi reyna að sjá hvað ég er að gera -.-
Aaah snilld! dýrka þetta ! En já, ég læsi alltaf, þoli ekki þegar er verið að trufla mig og svo er fólk alltaf að stelast í nammið mitt -.- oog ég treysti mömmu ekki fyrir því að standast freistinguna af því að skoða gögnin í tölvunni minni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..