Ég hef nýlega flutt elskulegan hundinn minn til Íslands og er heildarkostnaðurinn kominn í hátt á þriðja hundruð þúsund. Kostnaður við einangrun í Hrísey er í kringum 160.000 kr, svo voru endalaus útgjöld varðandi nauðsynlegar læknisskoðanir og sýnatökur, og flutning á milli landa. Þetta er mjög há upphæð en það var einfaldlega þannig í pottinn búið að hundurinn var orðinn hluti af fjölskyldunni, svo heim til Íslands varð hann að fylgja okkur, sama hvað það kostaði. Satt best að segja höfum...