Hví eltist ég við menn sem brjóta mig, buga mig, berja mig? Á meðan þú elskaðir mig, unnir mér, ei andmæltir mér? Á meðan ég hló að þér, hæddi þig, hunsaði þig. Þá á móti þú hjálpaðir mér, hlúð' að mér huggaðir mig. Samt ég stóð á þér, skrökvað' að þér, sparkaði þér. Aðeins eitt get ég sagt um heimsku mína: “Þeim var ég verst er unni mér mest”