Jæja. Í dag, 9. október, eru liðin 63 ár frá fæðingu tónlistar- og hugsjónamannsins John Lennon. Ég gæti rakið sögu hans hér en þarsem það hefur oft verið gert hér áður hef ég ákveðið að sleppa því. Ég tel að það væri gaman og fróðlegt að heyra frá aðdáendum hans hér á Huga (sem eru vafalaust margir) segja frá því hverskonar áhrif Lennon hefur haft, sem listamaður og einstaklingur, á þau. Persónulega þá spilar hann stórt hlutverk í lífi mínu. Ekki aðeins tónlistin sem hann gaf okkur, heldur...