iss.. ég myndi nú alveg segja að hægt væri að tengja hr. Sage Francis við anticon, þar sem henn er að fara að gefa út plötu þar (april/mars). og hvað með það þó þessir menn séu eða hafa verið tengdir anticon?? þetta eru fokkings alvöru mc's sem kunna að freestyle-a og halda GÓÐA tónleika. ég myndi 1000 sinnum meira vilja sjá Slug heldur en M.O.P. eða eitthvað svoleiðis. það væri snilld ef að það væri hægt að redda þessum tónleikum.
nöh.. það er bara ekki annað. það var nú einhver kjaftur á þeim á tímabili. talandi um fyrirhuguð comeback, þá las ég einhversstaðar að Main Source ætluðu að taka saman aftur..sem ég tel ALGJÖRA óþarfi, Extra P getur alveg séð um sitt einn. hann VAR Main Source. (nema hann þurfi einhvern til þess að segja sér að hætta að drolla við útgáfu á plötunum sínum)
það hefur verið misskilningur lengi að Rawkus hafi verið eitthvað independent (ekki að það skipti baun máli, nema af því að þeir gerðu út á það).. þeir voru mest allan tíman undir Interscope eða eitthverju svoleiðis.. en skiptir þetta einhverju máli.. MCA munu örugglega gefa út alla stóru artistana; MosDef og félaga. Last Emperor var samt hent út (+fleiri?), hvort sem það var af Interscope eða.. allt sama batteríið.
Sage tónleikarnir í N.Kj. voru bara slæmir að því leitinu til að það var ekki hugsað út í hljóðkerfið, og allt í kringum það fokkaðist. maðurinn sjálfur var magnaður! ..og ég er ekki frá því að Sage sé á leiðinni hingað aftur :)
já vá.. listafélögin þarna hafa verið vægast sagt slöpp í þessum málum undanfarið. hiphop-djömmin í Norðurkjallara hafa nefninlega mörg hver verið helvíti fín..
gsi.. ég held þú getir fengið þennan disk næstum því allstaðar þannig séð.. kíktu bara í Þrumuna, Hljómalind eða 12tóna…Brim jafnvel. man ekki hvað hann kostar.. ca. 1500 kannski? m.a. eru freestyle frá Promoe, J.Sands, Makeeba Mooncycle, ofl.
nokkuð gott bara.. gaman að hafa öll þessi íslensku lög þarna líka. freestyle-in frá öllu þessu fína fólki útí Westurheimi eru náttúrulega flott, en hefðu að sjálfsögðu getað notið sín betur ef mic hefði verið notaður..ekki sími. gott framtak engu að síður..greinilega hefur slatti af vinnu farið í þetta
Street Mass 12“… úúúúvííííí! svaka fínn lortur það. nýju Blackalicious 12” og Jugganots.. það er gott að eiga DJ með GÓÐAN smekk sem vin :) takk Kocoon!!!
þessir drengir kunna ekki að tala.. “HVAÐ hef ég að tapa?”????? maður segir “HVERJU hef ég að tapa”. hef ekki séð né heyrt þetta lag, en útfrá þessu hef ég ákveðið að þeir hljóti að vera hálfvitar!
það hlýtur að vera.. því mér finnst þetta ekki hljóma rétt.. verð á plötum hér er ekki eins og annarsstaðar! flest lönd eru mun ódýrari en við. 2000 kr. voru nógu mikið fyrir.. hvað þá nær 2500! það panikkuðu bara allar verslanir hérna þegar krónan fór að lækka og hækkuðu verð uppúr öllu valdi, án þess að þurfa þess nokkuð.það eina sem er í gangi er að þeir nýta sér svona aðstöðu til að græða enn frekar á fólkinu. og þegar krónan hækkar aftur, lækkar þá verðið? NEI, það helst svona áfram og...
heee.. ég er lítill vínyl-nasisti og ætla nú að halda því útaf fyrir mig.. en er ekki orðið píííínu þreytt að sampla Funky drummer.. ekki gefa mér þetta krapp “það skiptir ekki máli hvað/hvaðan maður samplar..það er hvernig maður vinnur úr því”. Funky drummer hljómar ALLTAF eins og Funky Drummer, þetta er bara því miður eitt af þessum sömplum. og þetta verð er ekki í höndum Japis, heldur Skífunar (XXX eru þar á samning núna). það er líka Skífan sem var fyrst hljómplötuverslanna til þess að...
já maður reynir svona eins mikið eins og maður getur að vera svolítið krútt. þetta býr í okkur öllum.. einhversstaðar. það var að koma út Prefuse- remix af “Faceless” með Five Deez.. mjög gott. þetta var gefið út á 12" en restin er ekkert alltof spennandi (sérstaklega miðað við Five Deez), þannig að það væri kannski sniðugra að downloada því frekar? goodshit hiphop.
haha.. ég hef ekki séð þetta myndband né heyrt neitt með honum, en ég er búinn að lesa einhverjar greinar um þennan gaur.. Bubba er alveg rétta nafnið á hann :) allar myndir af honum í köflóttum skyrtum, redneck-style! en er þetta ekki þróunin? þetta suðurríkja-dót hefur verið svo mikið í gangi, að það var kominn tími á alvöru hillbilly to step up haha. og Timbaland á bak við borðið.. svo sem ekki slæmt það.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..