Nú eru einungis fjórir dagar þar til 2. deild HM í hokkí hefst í Sofíu í Búlgaríu og mun landsliðið halda utan á sunnudagsmorguninn. Staðsetningin er kannski ekki sú heppilegasta því líkt og Írak, þá á Búlgaría landamæri að Tyrklandi. Meiningin er þó að halda sig að mestu frá öllum stríðsátökum á leiðinni. Landsliðsþjálfararnir Peter Bolin og Patrick Flynn hafa nú loksins valið endanlegt lið en það reyndist þrautin þyngri að reka endahnútinn á valið. Leikmenn liðsins eru: Markmenn Gunnlaugur...