Jæja, það kom nú að því að ég þurfti að forwarda port, nema ég fer á portforward.com og finn allar upplýsingar um hvernig á að gera það, en kemst svo að því að einhver hefur breytt frá default password og username svo að ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera til að komast inn. Ég hef farið á allskonar síður, fundið mismunandi upplýsingar en aðferðirnar eru yfirleitt útskýrðar á mjög flókinn og ótraustverðann hátt.

Ég þarf að resetta password og username þannig að það sé aftur default. Getur einhver sagt mér hvernig ég á að gera það, án þess að fokka verulega upp í internetinu? Ég er ekki með neitt backup ef eitthvað fer til fjandans.

Endilega, ef einhver veit, þá er ég mjög þakklát fyrir hvaða hjálp sem ég fæ :D