ég hef nú ekki mikið fallegt að segja um emax. hef verið með loftnet frá þeim í 4 vikur, og sambandið er ekki enn komið í lag. hef lent í því að netið dettur út í 2-3 daga í senn. samband datt td út í gær (föstudag) og var úti þar til laugardagsmorgun.
ég er ennþá að bíða eftir fastri ip tölu sem ég bað um fyrir uþb viku síðan, ofl ofl.
en þegar tengingin virkar er hún mjög góð. fæ oftast 50-160kb í download, og mjög gott ping í netleikjum (8-15).
ég ætla að gefa þeim einn séns í viðbót. en ef þetta heldur svona áfram færi ég mig yfir aftur yfir til línunet.
loftlína frá línunet laggar kannski, en hún er mjög stabíl og bilaði aldrei hjá mér í þá 12 mánuði sem ég var í þjónustu hjá þeim.