Ég var fyrst var við galla Farice strengina þegar Cancat-3 sæstrengurinn fór í sundur núna í desember þegar allt netsamband fór af háskóla svæðinu. RHÍ(Reiknistofnun Háskóla Íslands) sem sér um netsamband á háskóla svæðinu átti í stökustu vandræðum með að koma á varasambandi. Fyrst þá vissi ég ekki af Farice sæstrengnum sem er nú þegar kominn í gagnið. Eftir því sem ég las meira á RHI(www.rhi.hi.is) þá komst ég að því að það er annar strengur þarna, Farice sem er nánast EKKERT notaður. RHÍ var að semja við símafyrirtæki landsins(Símann, OgVodafone) til að koma á varasambandi sem kostað þá gífurlega fjármuni.
Helsti gallinn við Farice er að sjálfsögðu að það er 5-10x dýrara að senda gögn um strenginn. Þessi staðreynd gerir strenginn AFAR óhagstæðann. Ég er nú ekki með á hreinu hver flutnings getan er á Farice en við erum að tala að aðeins 10-20% af strengnum eru í notkun í dag, jafnvel minna. Mjög góð grein er að finna á http://rhi.hi.is/index.php?option=com_content&task=view&id=294&Itemid=44 þar sem gott ágrip er á vandræði RHÍ vegna óstöðugs netsamabnds um strengina.
Mjög góður og skemmtilegur punktur er að finna á þessum link hér að ofan.
Samkvæmt Fjarskiptaáætlun samgönguráðuneytisins fyrir 2005-2010 stóð til að árið 2006 skyldu allar menntastofnanir landsins hafa sameiginlega 2,5Gbit tengingu við útlönd. Núverandi tenging RHnets er aðeins 310Mbit og háð því að einn strengur sé í lagi. Ljóst er að aukið fjármagn þarf til að bæta tengingar RHnets ef stjórnvöldum á að takast að standa við markmið sín.Við erum að tala um að aðeins 1/8 af hefur verið komið til skila og það ótrúlega er að stór hluti þessara flutnings getu sem hefur verið lofað gæti farið í gegnum þennan Farice streng.
Friðrik Skúlason sem er höfundur veiruvarnar forritsins Lykla Pétur tekur í sama streng og ég og sést á þessari síðu http://b2.is/?sida=tengill&id=235825.
Núna ætla stjórnvöld að leggja drög að nýjum Farice streng sem er algjört waste of money. Af hverju í ósköpunum að leggja annan alveg eins sæstreng sem enginn hefur efni á að nota?? Stjórnmála menn eru að segja að þeir vilja hátækni iðnað hér á landi. Þessi fyrirtæki þurfa STÖÐUGA og ÁRÆÐANLEGA tengingu ALLT ÁRIÐ UM KRING. Þetta er ekki til staðar hér á landi og hefur alveg gleymst að minnast á þetta, bæði hjá núverandi ríkisstjórn og stjórnarandstöðu í samabandi við hátækni fyrirtæki. Það er núna síðast í dag að Yahoo fór á fund forsætisráðherra um möguleika á að koma á fót netþjónabúi eða einhverju þannig hér á landi.
Þetta er dæmi um hugsunarleysi hjá stjórnmálamönnum, fólkið biður um eitthvað og þeir henda bara einhverju í andlitið á okkur hugsunarlaust. Ég tel þetta vera hugsunarleysi á háu stigi og ég vona að það skapist einhver umræða um þetta í samfélaginu á næstu dögum eða vikum.
Ég nenni því miður ekki að lesa yfir þetta þar sem ég er í miðjum prófum en ég gat ekki lært með þetta hvílandi á hjartanu og varð að koma þessu frá mér, þannig innsláttar og stafsetningar villur eru óumflýjanlegar í þetta skiptið
Ekkert sniðugt hér