Gleymt lykilorð
Nýskráning
Myndlist

Myndlist

2.413 eru með Myndlist sem áhugamál
11.936 stig
77 greinar
779 þræðir
53 tilkynningar
1.373 myndir
251 kannanir
18.113 álit
Meira

Ofurhugar

Ameza Ameza 732 stig
crazybirdlady crazybirdlady 396 stig
Spiker Spiker 288 stig
nordanvindur nordanvindur 262 stig
TheySeeMeTrollin TheySeeMeTrollin 220 stig
Otcho Otcho 210 stig
Swandys8 Swandys8 204 stig

Stjórnendur

Þema 22 - Ári Eldsins (23 álit)

Þema 22 - Ári Eldsins Jæja þetta er nú eins og glöggt má sjá djöfull eða ári eins og ég kallaði hana sem er að kveikja í öllu. Fjör.
Ég er ágætlega ánægð með þetta, eldurinn er ekkert alltof uber en mér finnst glóðin alveg ágæt. Ég geri sjaldan bakgrunna…
Daman er annars ágæt, vinstri fóturinn á ekki alveg rétt á sér en þúst mjá.

Djöflar (þema) (2 álit)

Djöflar (þema) Devil's face!

Trérista (6 álit)

Trérista Þetta er ein úrvinnsla úr listgrafík áfanga sem ég var í haust. Mjög skemmtilegt að kynnast þessarri tækni. Þetta er semsagt trérista, skorið út í tré, litur borinn á og sett í pressu og þrykkt á ríspappír.
Kennarinn okkar var Guðmundur Ármann sem er einhver besti grafíker á Íslandi og ótrúlega fróður um efni og aðferðir í myndlist. Og bara yndislegur maður og kennari:D

Hringdrangi (13 álit)

Hringdrangi Þetta málverk er lokaverkefni minn í MYL504 sem er málunaráfangi. Þar var unnin hugmyndavinna og endað í einu lokaverki.

Mitt viðfangsefni er Hraundrangi og Jónas Hallgrímsson. Þetta verk á sér svolitla sögu sko.. Það byrjaði allt með að við fórum í LIM203(listum og menningu) á sýningu í Ketilhúsinu hérna á Akureyri sem var tileinkuð Jónasi Hallgrímssyni núna í haust. Þessi sýning snerti mig svolítið og kennarinn minn sem mér þykir mjög vænt um átti eitt verk þar og var með Hraundranga þar í aðalhlutverki. Svo nokkrum dögum seinna er ég að labba úti á götu og finn póstkort á götunni sem ég ákveð að taka upp. Og það er mynd af Hraundranga. Síðan þá tók ég það sem eitthvað tákn og verð mjög upptekin af Hraundranga og Jónasi. Fer að muna hvar Hraundrangi og Jónas hafa komið við sögu víða í mínu lífi..

Svo ég tek mynd af Dranganum og tek fjallalínuna og set hana í hring. Þetta er ekki góð mynd, svolítið erfitt að ná góðri mynd.. En þarna er texti í nokkrum brotum sem segir: “hlekki brýt ég hugar og heilum mér fleygi faðm þinn í” sem er brot úr Ferðalokum Jónasar.

Akrýl á striga, 80 x 80

ubu imperator (15 álit)

ubu imperator helvíti svöl mynd eftir surrealisma listamannin max ernst. sem fæddist árið 1891 í apríl í Bruhl í þýskalandi. hann dó árið 1976.
þetta er myndin ubu imperator sem hann málaði 1923

Mynd (14 álit)

Mynd smá dund

Pinhead (Hellraiser) (16 álit)

Pinhead (Hellraiser) Mynd af uppáhalds fígúrinni minni….

Nemandinn (16 álit)

Nemandinn Skissa af nemanda (supposedly ég) sem mætir í lokaprófið sitt og kemst að því að hún veit ekki neitt að því sem er á prófinu, en veit upp á sig sökina þar sem hún eyddi meirihlutanum af deginum í því að horfa á House, teikna, spila tölvuleiki og já já læra smá.

mynd (13 álit)

mynd Var aðeins að dunda mé

Abe's Oddysee (41 álit)

Abe's Oddysee Þetta er mynd sem ég gerði fyrir nokkru síðan, hún er að einum af uppáhalds leikjapersónunum mínum honum Abe.
En já þetta “David-Ice” dæmi þarna er bara nafnið mitt á DeviantArt, samt ekki hafa fyrir því að kíkja á mig, hef ekkert verið það virkur með síðuna :P Vona samt að ykkur líkar myndin :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok