Mynd sem er í vinnslu, það mun koma frekar heavy bakgrunnur þegar ég fæ loks tíma til að klára þetta. Þetta á að vera Arwen úr þekktri Hringadróttinssögu.
Hugmynd að stellingu tekin úr verki eftir Bouguereau.
Já ég hlakka líka til að sjá hana fullgerða en ég kvíði því að byrja á því haha. Ég er ekki beint þekkt fyrir að nenna í bakgrunna og þessi bakgrunnur verður miklu lengra út til hliðanna en þessi mynd sýnir. Það heitir sko að skora á sjálfan sig…
Ágætis mynd, væri gaman að sjá hana fullkláraða. En að mínu mati eru öll andlitin í myndunum þínum alveg eins. Væri kannski ágætt að breyta svolítið til, því þær eru farnar að verða eins og endurtekningar.
Ég geri nefnilega alveg svoldið af því, en næ ekki að færa þessi andlit yfir í það þegar ég er að teikna bara að gammi. Ég er vanalega voða lítið að hugsa, ‘hvernig get ég gert þetta andlit öðruvísi frá öllum hinum’. Ég pæli vanalega meira í fatnaðinum :P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..