Skissa sem ég gerði af Amezu ungri um daginn, mér leiðist aðallega og nenni ekki að taka til. Þið hin, sendið inn myndir og svona! Það má alveg þótt að það sé komið nýtt þema í gang ;)
Já þetta er karakter sem ég hannaði fyrst þegar ég var 11 eða 12 ára, hefur þróast helvíti mikið í gegnum árin haha :) Held að það sé 1 eða 2 myndir af henni inn á DA hjá mér.
ég skoðaði dev accountinn þinn og jam þú ert með svona breytingar frá 2002 .. fór nú upp og niður sýndist þú eiga þvílíkt flotta skissu frá 2003 eða 04 .. svo eh aðeins verra á eftir .. en 2009 er náttúrulega bara töff :D ^^
Heh stíllinn minn hoppar svona upp og niður. Get samt ekki sagt að ég elski skissurnar mínar frá 2003-4 haha. Reyndar fór ég að pæla í því að uppáhalds skissan mín af Amezu er geðveikt ekki á þessari mynd, hvaða feil var það hjá mér?
Já þú meinar af því að ég breytti þeim, það hefur að gera með söguþráðinn. Táknin hennar eru fyrst svona en breytast og verða undir augunum. En hver veit, þegar ég fer að skrifa í þessu aftur breyti ég þessu örugglega öllu saman haha xD …ef ég þekki mig rétt
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..