Mjög áhugaverð mynd, flott áferðin í kjólnum og dularfullar þessar verur meðfram hliðunum. Myndi kannski benda þér á að bæta meira við skyggingu til að gefa myndinni meira líf :) Annars mjög dramatískt og flott.
höfuðið er dálítið stórt miðað við líkamann, það skemmir eylítið dýnamíkina í myndinni.. annars virkar hún frekar ókláruð.. það væri gaman að sjá þig vinna hana í botn
jamm að teikna höfuð í samræmi við líkama er minn höfuðverkur-.- Er sammála því að hún sé ókláruð, ýmislegt smálegt sem þarf að laga, en er ekki alveg viss um hvað það er.Var samt búin að spyrja álits hjá mörgum og fékk bara framan í mig “þetta er fínt” eða “það mætti vera annar litur á kjólnum” en enga uppbyggilega gagngríni.
lengd höfuðsins á að vera sirka einn áttundi af lengd líkamans.. yfirleitt svo eru hendurnar líka dáltítið litlar, samt mjög vel teiknaðar, þurfa bara að vera smá stærri
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..