Mynd sem ég teiknaði um daginn af einhverri gellu að hlusta á tónlist. Tók mig tæpa 3 tíma, sem er ansi mikið fyrir svona litla mynd en ég er slórari með fullkomnunaráráttu ^__^
Og eins og þið sjáið á titlinum hef ég mjög gaman að því að nauðga enskunni… Takk fyrir mig.
Ú sá hana á ónefndri síðu! En þorði ekki að gefa álit… en úh! 3 tímar o_O Reyndar tekur það mig líka langan tíma að gera hitt og þetta en það er útaf því ég þarf alltaf að standa upp bara til að … standa upp.
O_O Ég geri það líka! Stend upp bara til að standa upp. Hvort sem ég er að tölvast, teikna, horfa á sjónvarp eða læra. Það er meðal annars þess vegna sem ég er svo lengi að öllu… *andvarp*
Ég er líka farin að hata þennan texta. :P Reyndar var ég aldrei ánægð með hann, skrifaði þetta bara… af því bara. EN það er alltaf hægt að stroka hann út/croppa hann í burtu. ^^
jamm ;] skil þig, langar ooooft að skrifa eitthvað sem ég er að hugsa þá stundina inn á myndirnar mínar.. en systir mín sagði mér fyrir löngu að sleppa því svo fólk gæti meira leyft ímyndunaraflinu að reyka, og hef einhvernveginn haldið mig við það :]
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..