Þú hefur greinilega gott vald á blýantinum!
Svona 2 hlutir sem trufla mig:
1) skuggarnir eru of grófir á kinninni á henni. Það er eins og hún sé með kýli þarna eða kinnbein svo rosalegt að Naomi Campell myndi dauðskammast sín. :P
Mýkja skuggann og draga hann aðeins inn til þess að minka kinnbeinið.
2) Mig langar að sjá fleiri skugga á henni en bara þessa sem eru. T.d. skugga sem sýna kinnbeinið á ljósu hliðinni. Þeir yrðu að vera nokkuð ljósir. Bæta inn þannig skuggum hér og þar, en passa að skilja eftir ljósustu svæðin alveg hvít, þá ertu komin með góða dýpt í hana.
Langar að bæta því við að ég er rosalega hrifinn af neðsta partinum af nefinu á henni, hann er næstum því photorealískur! :)