Hún er flott! :)
Ég sé það a stílnum þínum að þú ert góð að teikna með kolum, burt séð frá því hvort þú hafir prófað það eður ei.
Bara tvennt sem méf finnst betur mega fara:
1) hún er örlítið beinmikil í framan, nefið og kjálkinn og hakan þá aðallega. Með því að minnka þessa hluta nærðu meira kvenkyns elementi í hana.
2) Aftur er það kontrastinn. Dekstu svæðin alveg svört og þau ljósu alveg hvít. Hárið er fínt í þessu samhengi og andlitið líka, en ég hefði viljað sjá varirnar dekkri - Eiginlega næstum því eingöngu í svörtum og hvítum. Þannig kemur meiri glansáferð á þær.
Annars er þetta flott mynd og haltu áfram að teikna! :)