Kannski best að útskýra fyrst hvað redlining er: Þegar fólk “redline-ar” mynd þá er tekið mynd af fólki/dýrum (anatómía/hlutföll) og sett inn rauðar línur til þess að athuga hvort hlutföllin séu rétt. Þá er oft tekin myndin, sett rauðar línur yfir og athugað anatómíu, og svo önnur mynd sett við hliðiná sem hefur þá rétt hlutföll ef eitthvað er að.
Ég var að spá hvort fólk hefði áhuga fyrir því að ég myndi redline-a myndir fyrir þau ef þið eruð óviss um anatómíu og/eða hlutföll á myndunum ykkar. Þá þurfið þið að biðja sérstaklega um það, því ég ætla ekki að fara að stökkva á myndir allra ;)
Hér er t.d. dæmi um redlining<———–
Ég er ekki fullkomin og ekki með fullkomna sýn á anatómíu og hlutföll, en ég get reynt að hjálpa eins og ég get ef fólk vill það. Þá getið þið sent inn myndina með link í kork eða í myndakorkinn og beðið mig um að redline-a ef þið viljið.