Úff, eru allir hérna með Wacom Intuos!? Rándýrt apparat alveg!
-Maður fær reyndar allt sem maður borgar fyrir, en þetta er kanski full mikið pro svona fyrir fyrsta teikniborðið.
-Mæli með því að þú skoðir Wacom Bamboo Fun, þau kosta 19.900 minnir mig og eru alveg dúndur - allt sem þú þarft, þú getur fengið þér Bamboo Fun Medium (stærra borðið) á tæpar 30.000.
Því stærra sem borðið er, því auðveldara er að teikna með því.
Ah, og ég verð að taka undir með Amezu, Trust borðin eru hörmung, maður venst þeim aldrei almennilega og þau endast aldrei út ábyrgðartímann.