Já, ég sótti líka um sem stjórnandi á þessu áhugamáli fyrir löngu, var með meðmæli og læti. Ég er samt ekki eins spenntur fyrir þessu og ég var þá, hef minni frítíma nú en áður og vil helst ekki vera að minnka hann meira en þörf krefur.
Ég tók þögninni bara þannig að ég taldi að vefstjórinn áliti mig óhæfan til verksins og ákvað að gleyma þessu. En smá svar hefði verið ágætt, hefði þess vegna bara mátt vera einfalt “Nei.” eða eitthvað svipað, svona svo maður hangi nú ekki alveg í lausu lofti með þetta. :)