Það eru ófáir sem ekki vita hver Superman er. Þessir sem vita það ekki þurfa umsvifalaust að fara til hausalæknis. Þegar Superman leit dagsins ljós í Action Comics var skrípamyndaheimurinn aðeins að komast á skrið. Skammt var síðan Bandaríkjamenn voru í stríði og enn og aftur þurfti nýja hetju. Gömlu kúrekarnir viku í vegi fyrir manninum úr stáli. Hann er ósigrandi og það eina sem bítur á honum er Kryptonite. Þetta er mjög góð persóna sem því miður á ekki nógu vel við lengur. Á sama hátt og kúrekarnir viku fyrir Stálmanninum útúr geimnum þarf hann nú að víkja fyrir nýjum hetjum myndasagnaheimsins. Preacher, Spider Jerusalem og The Invisables. Samansafn af ófyrirleitnu fólki sem gerir hvað sem er til að láta réttlæti og sannleika í ljós. Hetjurnar breytast, ekki baráttumálin þeirra.