Batman klárlega, því hann hefur allt sem Cap hefur og meira til þ.á.m. tæki (og pening) ásamt því að vera mun grófari og viljugur við að beygja reglurnar ólíkt Cap sem spilar eftir bókinni.
Það mætti halda að Batman væri með Supersoldier serum í sér vegna styrkleika hans og fimleika. Mér finnst svo herþjálfun skipta litlu máli, ef eitthvað þá bara hindrar hún Cap, tel ég.
Ég hef trú á Cap en er sammt ekki viss. Aðallega þar sem hann hefur krafta. En náttúrulega yrði þetta mjög jafnt, Batman svona jafnar þetta út með gríðarlegum ninja bardaga hæfileikum og mjög mikilli tækni, meðan cap hefur bara skjöld.
Veistu váá ég bara get ekki gert þetta upp í huganum, þannig ég segi, batman vinnur, fer heim og deyr úr sárum sínum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..