Takk fyrir, Ingapinka!
Ég hafði mjög gaman af að teikna þessa mynd og lita.
Vanalega er ég að vinna myndir fyrir blöð og tímarit og þá með skilafresti hangandi yfir mér svo mér gefst sjaldan tími til þess að njóta þess að gera myndirnar. Meira svona að gera þær “nógu góðar”.
Þessa gerði ég með því að teikna hana mjög fljótt með blýanti og svo líka með pennanum. Veitti mér það frelsi að nota pennann á svipaðan hátt og blýantinn, svúmm, sviss og kviss! :)
Svo tók ég mér góðan tíma í að lita hana og verð bara að segja þér/ykkur að ég er helvíti ánægður með útkomuna :)
Þökk sé DrawClubinu þá tel ég mig hafa tekið nýtt skref í teikningu með gerð myndarinnar….það er sko bara ekkert annað, HA HA! :)
Áfram að teikna!
Bestu kveðjur,
Ingi
www.facebook.com/teikningi