Ég er með eina hugmynd til að virkja nokkra í þessu áhugamáli og kannski fá fleiri inn í blandið. Þetta er svona hálfgert challenge sem var gert á korknum á Sijun.com og gekk mjög vel þar.

Í hverjum mánuði fáum við eitt orð eða eina setningu þar sem þeir sem vilja geta teiknað þetta hugtak eða hlutinn. Svo póstum við útkomum okkar á korknum. Svo yrði skylda þeirra sem taka þátt að gagnrýna hina og koma með hugmyndir hvað betur mætti fara hjá hverjum og einum.

Þetta er bara ein hugmynd til þess að virkja þetta áhugamál. Ef maður gæti fengið fólk til að taka þátt í þessu þá held ég að þetta yrði skemmtilegt.<br><br>—————————
“Spiritual atonement can be achieved with the exertion of body through the power of Martial Arts”
<br>
<a href="http://www.svanur.com">www.svanur.com</a
[------------------------------------]