Verið þið allir sælir…sem hafa áhuga á myndasögum. Ég fer sjaldan á Hugi.is en ég tok eftir að margir spyrjast eftir BLEKI!! Ég er ritstjóri blaðsins og get sagt ykkur með vissu að það er ennþá á lífi.
Tíunda tölublaðið kom út í ár og var tvískiptur og í lit að hluta. Þetta var til þess að halda upp á 10 ára útgáfu afmælið okkar.
Neo-Blek eins og það heitir nú var í húsnæði við Brautarholt en er nú að flytja til Hafnarfjarðar þar sem loftið er betra.
Heimilisfangið er Strandgata 11 og þið getið send mail á mig á jeantoineposocco@yahoo.com.
11. tölublaðið á að koma út næsta vor og ef einhver hefur áhuga að senda efni í blaðið er það vel komið. Við skoðum allt saman. Hafið samband.
Þeir sem vilja kaupa eintök af blaðinu geta sett sig í samband við mig. Við erum með öll blöð og líka samantekið fyrstu 7 blöð í bók.
Kveðja Jean