Matthew Michael Murdock, lögfræðingur er alls ekki allur þar
sem hann er séður. Hann á sér leyndarmál sem að engan
hefði grunað ef að hann sæist úti á götu.

Á yngri árum, sem sonur minniháttar boxara, var Matt Murdock kennt af
föður sínum að slagsmál væru ekki svar við lífsins gátum.
Jack Murdock, göfugur maður en ekki vel menntaður,hvatti ungan
son sinn, Matt, til þess að reyna að ná langt í lífinu með
huganum, frekar en hnefanum. Matt tók þessi heilræði til hjartans.
Niðurstaðan var sú að hrekkjusvínin, samnemendur hans stríddu honum og uppnefndu þennan(að þeirra mati)mjög svo innhverfa
bókaorm “Ofurhugann”(Daredevil).
Niðurlægður, byrjaði Matt að þjálfa sig án vitneskju föður síns
til að geta tekið á málunum í skólanum.
Matt var mjög göfugur og það var aldrei meira áberandi
en þegar Matt ýtti gömlum manni úr vegi bíls á flótta(pallbíls, nánar tiltekið).
Við þetta, fékk Matt gusu af geislavirkum úrgangi í augun.
Í fyrstu var Matt niðurbrotinn yfir fötluninni, en smátt og smátt
komst Matt að því að geislavirki úrgangurinn sem fór í augun á
Matt, hafði veitt honum þann hæfileika að geta skynjað allt og
alla í umhverfi hans. Sjón hans var að vísu horfin, en geislavirknin hafði magnað hin fjögur skilningarvitin upp í yfirskilvitlegum mæli. Þar sem að Matt gat ómögulega lagað sig að
hinum mögnuðu skilningarvitum, endaði hann undir kennslu hins blinda bardagalista-meistara, Stick. Stick menntaði Matt um hið andlega og líkamlega ástand bardagalista.
Sem nemandi í Lagaháskóla Columbiu, hitti Matt og varð ástfanginn af Elektru Natchios, dóttur Grísks diplómata.
Hamingja þeirra eyðilagðist þegar faðir Elektru dó í gíslatöku.
Elektra dró sig tilfinningalega burt frá Matt og umheiminum.
Hún flúði til Austurlanda og gróf allar sínar tilfinningar
sínar og fór að fullkomna bardagahæfni sína.
Seinna á háskólaárunum dundi yfir Matt annar harmleikur.
Faðir hans, Jack Murdock hafði verið myrtur af brjáluðum
box-aðdáendum, þegar hann hafði neitað að há bardaga.
Óánægður með lögreglurannsóknina, fór Matt með nafnið “Ofurhuginn” og andlitið fyrir innan grímu og hafði uppi á þeim sem leiddu föður hans í gildru svo hann yrði myrtur.
Hann fékk útrás í þessu og hélt því áfram að reyna að útrýma glæpaöldu heimsins.
Hann varð DAREDEVIL.