Já fuck… Ég fer árlega til Austurríkis og á hótelum þar eru þýskar stöðvar alveg jafn vinsælar og austurrískar.
Á þessum þýsku stöðvum er önnur hver frétt og atburður um þessa hreint ömurlegu hljómsveit og ég hef séð hljómsveitina “performa” nokkrum sinnum í sjónvarpi og þeir spila alltaf á “playbacki” þ.e.a.s. þeir eru ekki í raun að spila heldur er “tónlistin” spiluð af diski.
Þessir unglingar sem eru á aldri við mig eru óeðlilega frægir í sínu heimalandi og allar stelpur á aldrinum 10 - 20 ára gjörsamlega slefa yfir þessum bæði hommalegu og asnalegur gaurum eins og ekkert sé sjálfsagðara!
Þegar ég var úti í Austurríki núna í lok Janúar sá ég spjallþátt þar sem þeir komu og “performuðu” (allt playback og mime), og nánast allir í áhorfendahópnum voru stelpur á mínum aldri sem voru stundandi grátur, öskur og píkuskræki alveg út í eitt svo að hvorki þáttastjórnandinn né hljómsveitameðlimir Tokyo Hotel gátu tjáð sig.
Hvað er eiginlega að þessu fólki? Sér það ekki að þetta er allt fake, playback, mime, búið til af fullorðnum producerum og gjörsamlega grátsorglegt?! Það finnst mér allavega, bindið ykkur ykkar skoðanir á málinu.
Kv. Sindri