Jújú, alveg heill hellingur, og meira að segja mjööög stórt tap en að vísu spiluðum við þetta þannig út því við höfðum gott og rúmt fjármagn sem við áttum tæknilega séð að tapa með.
Gætir talað við RR ehf. þeir fluttu inn Metallica og sérhæfa sig í svona stærri viðburðum.
Stórefa samt að Slash sjái hagnað í að koma hingað til lands þar sem hann þyrfti að troðfylla Egilshöllina ca. þrisvar til að fá nógu marga dollara til að þetta borgaði sig þar sem krónan er ekki beint hagstæð.
Efast líka um að eftirsóknin í þessa tónleika sé næg til þess að þeir væru haldnir hér, mjög erfitt að selja miða nú í dag.