Alexandra í Mammút póstaði honum einhverntíman á taflan.org
*hvísl*
Svefnsýkt og hryggbrotin verð ef ég beini ekki kjaftinum að þér.
Tygg oní kjöt og hræki á þig, oj blóðbragð blóðbragð.
Drekki regni niður hálsinn á mér svo ég þagna þagna þagna.
Oh, ég vil faðma þig fast. ( “ég vil fá það fast”, fyrir þá sem vilja )
Ég verð undir þér og ég skal dansa bara og aðeins fyrir þig.
Ég skal syngja bara ef þú temur mig.
Ég verð undir þér og ég skal dansa bara ef þú hemur mig
Ég skal syngja bara fyrir þig.
Stattu upp!
Nei, úps, ég klippti þær óvart af. Þínu litlu fætur í skiptum fyrir kjól.
Þínu litlu fætur í skiptum fyrir kjól.
Sem ég dansa í og klófesti töfra.
Ég kann að klófesta töfra, og þar bý ég okkur til börn.
Ég held mér undir þér og ég skal dansa bara og aðeins fyrir þig
Ég skal syngja bara ef þú temur mig.
Ég verð undir þér og ég skal syngja bara fyrir þig.
Ég skal dansa bara ef þú hemur mig.
o.s.frv.