Ef ég ætti
fleiri stundir, fleiri mínútur
fleiri orð, fleiri nætur
fyrir þig
Þó að ævin
geymi óteljandi sekúndur,
þá er oft eins og tíminn svíkji mig
Samt er ekkert sem að breytir því
samt er ekkert sem að breytir því
hversu heitt þetta hjarta þráir þig
ef ég hefði
önnur færi, önnur augnablik
önnur ráð, aðra kosti
handa þér
oft á tíðum
á ég ekki nógu hægt um vik
til að sá eða gefa af sjálfum mér
Samt er ekkert sem að breytir því
Samt er ekkert sem að breytir því
hversu heitt þetta hjarta þráir þig
Það er ekkert sem að breytir því,
ekkert annað sem mig þyrstir í
Þessi sál, þessi hugur þráir þig
þó að myrkrið virðist endalaust
vetur, sumar, vor og haust,
skaltu minnast þess að lífið er
ýmist fjara eða flóð.
Það er ekkert sem að breytir því,
ekkert annað sem mig þyrstir í
Þessi sál, þessi hugur þráir þig