Mig vantar lag. Íslenskt lag til þess að vera nákvæm. Það sem ég man úr því hljómar svona:
“…hún á augu, hún á sál, hún á fallegt fingramál”
“…barnið ó barnið, kenndu okkur mál þitt, kenndu okkur að skilja þig, kenndu okkur mál þitt”
Í myndbandinu er lítil heyrnalaus stúlka að labba um íslenska náttúru og leika sér á rólóvelli m.a.
Niðri í horninu er túlkur fyrir heyrnalausa.
Og mig minnir að það hafi verið kona sem söng þetta lag.
Þetta er það eina sem ég man, vantar þetta lag asap;)