Ertu 100% að það sé útaf þungarokki? því það er oft uppeldið sem skiptir öllu máli, eins og er sagt að þeir unglingar sem eru minnsta kosti 1 klst með foreldri eða foreldrum minnki töluvert líkur að hann fari í rugl.
Ég vil líka minna á að það er ekki bara þungarokk sem er eitt á báti, Hip-hop, rapp, techno, rock, popp og jafnvel fleirri stefnur sem margir eru í dópi, sýna fullt af hálfnöktum konum í tónlistarmyndböndum, syngja beint eða óbeint um morð, syngja um að stela hlutum,syngja um drykkju, syngja um peningagræðgi og ég get haldið svona áfram. Það sem ég er að reyna segja að hvar sem þú lýtur þá er þetta svona í næstum því allri tónlist. Ert þú á því máli að útrýma allri tónlist sem er í gangi í dag? bara spyr.
líka viltu skilreina t.d hvaða hljómsveit hann hlustar á því dauðarokk/þungarokk er mjög breið skilgreining á rokki og þú gætir kannski vera tala um Led zepplin og alla leiðina í Cannibal corpse eða eitthvað álíka.
Ég er kristinn en ég er samt á því máli að ekki útrýma þungarokki/dauðarokk? afhverju ekki? nú í staðinn fyrir að eyðileggja mitt líf þá hefur það BJARGAÐI lífi mínu, ég væri ekki hér án þungarokks…nú? kannski spyrðu, ég hefði fyrir löngu framið sjálfsmorð…..en þegar ég kynntist þungarokk rétt áður en ég ætlaði gera það, þá breyttist allt, þú mátt túlka það sem björgun guðs eða eitthvað. En þungarokk leyfir manni að leysa út tilfinningar sem væri erfitt að leysa. Þetta á við mjöööög marga aðla sem hlusta á þungarokk og að mínu mati eins og öll tónlist er meiri kostur heldur en galli.
Ég auðavitað skil þína skoðun alveg og ber virðingu fyrir henni. Takk fyrir mig :D
I can't help it!…I'm Metally Insane!