Sveimandi Rafrokk
Það verður sveimstemmning á Gauknum, þriðjudagskvöldið 31.júlí þegar fram munu koma rafpoppararnir í Ampop, ambient undrabarnið Plastik og sveimrokkarinn Stafrænn Hákon. Allir listamennirnir munu kynna nýtt efni en Stafrænn Hákon gaf nýverið út EP plötuna “..eignast jeppa” sem fæst á litlar 300 kr. í Hljómalind. Von er á útgáfum á efni Plastik á næstu misserum á vegum undirtóna. Ampop eru nú að vinna að sinni annarri breiðskífu en hún er væntanleg næsta vor.