aha<br><br>Kannski svolítið langt, það verður tekið af þessu en hér hafiði allt um eftirtalna þara…:þ Þetta er fróðleikur sem ALLIR hafa gaman af:þ <b>Beltisþari Beltisþari (Laminaria saccharina) telst til brúnþörunga. Hann hefur greinótta festusprota sem ganga niður af stilknum. Stilkurinn er sívalur og gegnheill og getur hann verið á bilinu 20 - 100 cm á lengd. Blaðið á fullvaxinni plöntu er venjulega 150 - 200 cm á lengd og 20 - 30 cm breitt. Blaðjaðrarnir eru bylgjóttir og oftast er blaðið hrjúft viðkomu. Beltisþari vex allt í kringum landið einkum á malarbotni, allt niður á 25 m dýpi. Dvergarþang Dvergaþang (Pelvetia caliculata) telst til brúnþörunga og er eins og nafnið ber með sér smávaxnasta þangtegundin, venjulega á bilinu 2 - 10 cm. Blaðkan er þykk, leðurkennd og rennulaga. Útbreiðslusvæði dvergþangs við Ísland er með suðurströndinni að norðurströnd Breiðafjarðar. Það er helst að finna efst í fjörunni. Dvergþangið þolir vel þurrk og þarf ekki að komast í snertingu við sjó vikum saman.</
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..