Þessa dagana stendur yfir listahátíð ungs fólks sem ber heitið Unglist. Unglist er starfrækt í tengslum við Hitt Húsið. Dagskráin er fjölbreytt að vanda þ.á.m. nokkur tónlistarkvöld.
Á föstudaginn, 25. október, verða tónleikar er bera heitið Neðanjarðarrokk og hefjast þeir kl. 19:00.
Fram koma hljómsveitirnar: Lack Of Trust, Citizen Joe, Reaper, Myrk, I Adapt, Múspell og Dys.
Aldurstakmarkið er 16 ár.
Unglist lýkur svo á laugardaginn, 26. október, með tónleikum í Tjarnarbíói er bera heitið Hipp hopp helvíti.
Á þeim hljómleikum koma fram hljómsveitirnar Mc Steinbýtur, Afkvæmi Guðanna, Bæjarins bestu, MC Mezzias og Pax. Gestahljómsveit er Króm frá Eskifirði. Aldurstakmark 16 ár.