Bent nálgast!!! úúújjjeee!
Þú heyrir rímu mína einu sinni og þú færð hana á heilann. Heyrir hana einu sinni enn og eina sem kemst að er Rottweila. Á hverju götuhorni ferðu að sjá ásjónu mína. Innan skamms ertu farinn að efast um geðheilsu þína. Þú heyrir rödd mína í hausnum á þér og heyrir að ég er orðin æstur. Fer að ásækja þig draumum og aðdáun þín breytist í ofsahræðslu. Þú ert orðin strengjabrúða og veist að ég er yfir þér. Þú getur flúið en þú getur ekki falið þig fyrir mér. Þú ert á leið til sturlunnar þannig tek ég tig á taugunum. Getur aldrei gómað mig því þú sérð mig ekki fyr en þú lokar augunum. Þú fjarlægist raunveruleikann með hverju orði af mínum munni. Ef Freddie Kruger væri til, myndi hann dreyma martraðir um mig. Nú ertu orðinn holdgerbingur illsku og í gegnum þig við myrðum. Erum ekki í víðum heldur kirtlum. Er við ekki yrkjum heldur kyrjum. Rímur af mýnum syndum. Gefin út í fimmtán bindum. Veruleikafirrtur. Rís úr kistu, fyrstur. Anti kristur. Nú er sturlunin farin að dreifast og allir mína rímu syngja. Og ég leiði her uppvakninga og geðsjúklinga. Með satanískum rímum drepið ófáa en enn ég tunguna tálga. Nostradamus spáði umkomu mína Helter Skelter…… Bent nálgast.. Bent nálgast.. Bent nálgast… Bent nálgast… Bent nálgast.
Ég skapaði heiminn á sjö dögum. og eyði honum á jafn mörgum. Náttúruhamfarir á fyrsta degi og engisprettur á öðrum. Þriðja, fjórða fimmta og sjötta mun ég bæta við ykkur kvölunum. Kem svo sjálfur á sjöunda degi til að ráða ykkur af dögunum.

Bent nálgast.. Bent nálgast… Bent nálgast…
Bent nálgast
Ég er hann, ég er Jahve Jah, ég er fokking Óðinn. Fokk flæðismetafor mínar rímur eru skyndaflóðið. Eftir battl. Heyri ég aldrei klapp. En ég elska grátina. Til helvítis með jarðneskar eigur við skulum battla upp á sál þína. Þú veist ekki í hverju þú lendir er komman fyrir hendi. Hlustaðu rímurnar aftur á bak og þú heyrir djöfullegar athugasemdir. Og jafnvel Auxpan öskrar á eftir mér að ég sé viðundur. Og þeir sem byrja að fíla mig eru kallaðir djöfladírkendur. Listamaðurinn fyrrum þekktur sem Bent til þess að hrista upp í hlutunum. Og nýa nafn mitt er fimmhyrnd stjarna með hring utan um. Andstæðingar grípa ekki hljóðnemann þeir grípa í kross og beina honum að mér. Enginn stígur upp án Biblíu og með hvítlauk um hálsinn á sér. En mig langar til að verða frægur rappari fá samning og meika það. En sviðsframkoma mín er þannig að Marlyn Manson myndi ekki einu sinni mæta á tónleika. Hatur mitt er hreint, rífur úr mér svart hjartað til að sína hversu reiður ég er. Mun aldrei róast fyrr en það er endurvaktar mannfórnir til heiðurs mér.