Ný afurð frá Ampop
Út var að koma ný plata frá Ampop. Platan heitir (Re)Made for Market og inniheldur tvö ný lög og 5 endurhljóðblandanir af laginu Made for Market. Endurhljóðblandanir eru í höndum Plastik, Ruxpin, Heckle & Jive og Natrajk. Platan kemur út í takmörkuðu upplagi á Íslandi aðeins í 250 eintökum en hluti plötunnar kemur einnig út á 7" vinyl á vegum breska fyrirtækisins Static Caravan Recordings (Isan, Plastik, Sybarite o.f.l.). Edda miðlun og útgáfa sér um dreifingu á gripnum sem nú fæst í öllum betri hljómplötuverslunum.