Það eru ekki bara aðdáendur söngspírunar Mariah Carey sem eru geðveikir heldur liggur hún nú sjálf inni á geðdeild eftir að hafa fengið taugaáfall. Cindi Berger, talskona Carey sagði í síðustu viku að söngkonan hafði aflýst framkomu sinni á 20 ára afmælistónleikum MTV vegna alvarlegs hæsis. En eftir að út spurðist um taugaáfallið var yfirlýsingin leiðrétt. Frú Berger þvertekur þó fyrir að Mariah Carey hafi reynt að fremja sjálfsmorð og útskýrði sár sem voru á líkama hennar með því að þeir væru tilkomnir vegna þess að í allri geðveikinni hafi hún brotið diska og glös og runnið svo til í brotunum.