JHM Sport er með spænsk GAS GAS trial hjól til sölu - en Gas Gas virðist vera númer 1 í þessum trial bransa. Þau kosta c.a. 6-700 þúsund hjá honum - jhmsport.com
Tveir vinir mínir eiga Gas Gas trial hjól og láta vel af þeim. - Annar keypti sitt nýtt fyrir um 7 árum og hinn var að kaupa sér nýtt nú í sumar.
Annar möguleiki:
http://www.motul.is/default.asp?content=netverslun&fl=115Motul er að selja hjól frá Scorpa. Ég veit lítið um þau eins og er. - Mér finnst það sniðugur fídus að þau eru með áföstu sæti, það svona eykur notkunargildið myndi ég segja. - einhvernveginn held ég þó að GAS GAS hjólin séu vandaðri / meira fyrir peninginn, en ég get svo sem ekkert rökstutt það frekar.
- Ég hyggst kaupa mér trial hjól á næstu mánuðum, þannig að gaman væri að heyra ef þú kaupir þér eitt kvikindi - og hvernig það reynist.