Ég fékk þennan jakka í jólagjöf frá kærasta sem átti mótorhjól og bjó erlendis. Við slitum sambandinu áður en ég náði nokkru sinni að nota jakkann, svo hann er til sölu.
Hann er frá Spidi, FitForLady línunni. Hann er vatns-og vindheldur, er samt ekki leður. Innan í honum er vattjakki sem hægt er að renna í og úr eftir því hversu heitt er.
Sílíkonhlífar eru á herðablöðum og olnbogum.
Hann er mjög fallegur í laginu, og mjög þægilegur. Það eru endurskinsrendur á honum, mjög litlar og dömulegar. Hann fellur vel að líkamanum og er nokkuð síður. Það er hægt að hneppa buxum frá sama merki í hann.
Hann er alveg ónotaður (ég er samt búin að taka merkin af)
Hann kostaði 380 ensk pund nýr, það er um 47.000, en ég ætla að selja hann á 37.000 kr.
Annars veit ég lítið um mótothjólajakka, svo ef einhverjar upplýsingar vantar, látið mig vita.
Myndir eru hér:
http://barbara.cartland.net/uploaded_images/IMG_1848-747341.JPG og http://barbara.cartland.net/uploaded_images/IMG_1849-749097.JPG
Bætt við 29. maí 2007 - 19:22
http://www.spidi.com/spidi-jsp/index.jsp?page=products&id=983&articolo=VANITY
Hér er hann á Spidi heimasíðunni! ýtið á svarta litinn, þá sjáið þið þennan.