Jæja!! langþráður draumur kominn í hús 250cc yamaha WR 2004. fengum þetta á 450 þús með hlífum og hjálmi og öllu það átti að kosta 600 án galla.

ég er of sáttur með þetta og fór í gærkvöldi á álfsnesið eða hvað sem það nú heitir að prófa það í drullumallinu þar og það var mjög gaman.

eina svona sem við lentum í… við erum nátturulega ennþá að læra sko og áttum í erfiðleikum með að setja það í gang. Var búinn að reyna að sparka í gang í korter Þegar það kemur einhver kall þarna og opnar fyrir bensínið…. :'D

jæja ég ætla að stefna langt í þessu og vonandi byrja að keppa á þessu bráðlega þegar ég er kominn með gírskiptingar á hreint.

Takk fyrir mig