Það er ekki hæðin sem skiptir máli… þú ræður ekkert betur við 250 ef að þú sér 2,10 á hæð eða 1,78 á hæð… ég mæli ekki með 250 til að byrja á… fáðu þér 125 2 stroke eða 250 4 stroke, það eru fin hjol til að byrja… allsekki byrja á ofstóruhjóli
Aldrei byrja á of stóru hjóli, þú lærir að keyra hraðar á litlu hjóli og
þegar þú ert búinn að ná ÖLLU út úr því þá er kannski kominn tími til að stækka við þig, og þá einmitt notarðu tæknina sem þú lærðir til að koma litla hjólinu hratt áfram og nýtir hana á stærra hjólið, og þá kemstu miklu hraðar en þú hefðir gert hefðirðu farið beint á stóra hjólið!
Næst a.t.h. er að þú mátt aldrei keyra hraðar en þú ræður við, því að þú
tapar miklu meira á því að meiða þig og þurfa að vera í gifsi í nokkra
mánuði og svo að fá fullan mátt í hendina, eða what ever hvað það var sem
brotnaði. (Valdi Pastrana)