Það er ekki hægt að yfirfæra kúbik yfir í hestöfl það er einfaldlega of margt sem spilar inní. Sem dæmi er 1.5 lítra vél aðeins um 100hestöfl í fjölskyldubíl en BMW náði yfir 1200 hestöflum úr 1.5 lítra 4 cyl. vélin í sigurbíl formúlu eitt fyrir einhverjum árum. Ath að þá mátti hafa túrbínu annað en núna.
Rúmtak véla er mælt í rúmsentimetrum (cm3) eða rúmtommum(ci eða cu.in. = cubic inches) (USA), yfirleitt er bara talað um kúbik hvort sem er og vanir þekja strax muninn á 350ci vél (tæplega 6lítrar) og 3500cm3 vél (3,5lítrar). USA er samt alltaf meira að færa sig yfir í metrakerfið og ég held að þeir tali mest bara um Lítra eða cm3.
ci er u.þ.b. 16 sinnum stærra en cm3