fyrst þessi umræða er farin að snúast um lögregluna.. JÁ það er til slatti af fínum löggum á Íslandi, lent á mörgum sem hafa sleppt manni án vandræða þó maður hafi verið brotlegur, þó virðist reglan vera að þetta séu gamlir menn (í hettunni) frekar en ungir sem kunna að höndla lögin…
og ef comment mega koma á þessu málfrjálsa landi, þá er hátt hlutfall af lögreglumönnum (og Konum) um og undir þrítugu vanþroskuð eineltisbörn sem fóru fyrst í gæslu á menntóböllum, þaðan í dyravörslu og loks í lögguna: og eru að fá útrás fyrir bælda reiði til margra ára, sem er ekki beint rétta forsendan til að vera refsivöndur lögbrjóta á landinu.
Hef lent á lögreglum, já verið sleppt með brot og lent í ekkert nema almennilegheitum, bara vinsamlegum áminningum og fólki að sinna sínum skyldum, en það þyrfti nauðsynlega að kanna bernsku þeirra sem sækja um í lögreglunni (sérstaklega sumarafleysingar, skilst það séu þær sem koma vondu orði á hina), því ég hef lent sjálfur úr partýi, edrú, í kópavogi niðrá stöð í Rvk, fyrir að “líta út fyrir að vera undir áhrifum”. Þetta var á þeim árum sem rapptískan var hvað mest “inn” og ég mun halda þessu fram í rauðan dauðann að þetta hafi verið “rasistahandtaka” af ástæðum sem ég nenni ekki að telja upp, en augljóst tengdar klæðaburði og stíl, og já, ástæðan fyrir að vera handjárnaður, lamið utan í lögreglubíl margoft og svo hótað 30k sekt niðrá stöð og látinn ganga heim frá rvk í kóp var- (eftir að þeir eyddu þrem korterum í að finna ástæðu meðan ég var í geymslunni nota bene) - var að hafa “hindrað framgang laganna”. Lögreglan mætti í partý því tilkynnt var um líkamsárás, fann hvorugan aðila og maze-aði 2 skáknörda og tók mig niður fyrir -án þess að sleppa úr eða ýkja- smella fingrum og segja “Fyrirgefðu” við lögregluna, komst ekki lengra áður en ég var keyrður niður, en ég ætlaði einungis að spurja, “Fyrirgefðu, en hvers vegna er verið að taka þessa tvo?” Fólk með of mikið vald og of lítið undir sér (metophorically speaking) gerir minna gagn en ógagn.
Já, það er hægt að væla endalaust undan löggunni, ég sjálfur fór uppá slysó og feikaði áverka til að geta svarað fyrir þessa hótun ef það yrði úr henni, en líka oft sloppið þegar Góðar lögreglur meta stöðuna útfrá “humane” sjónarmiði, ekki bara til að flexa skildinum.
Býst við að Stóra hluti vanti í þessa grein, en veit vel að lögreglan (ekki alhæfing) hatar fátt meira en bifhjólafólk, en málið er muun einfaldara:
Ekki hækka kröfur um nám eða álíka hluti ótengda “lifandi fólki” í inntökuskilyrðum lögreglunnar: Kynna sér frekar bakgrunn viðkomandi (grunnskólaferil, einelti t.d.) og gera sálfræðipróf hvort einstaklingarnir séu líklegir í að “misnota vald sitt”.
Besta fólk á erfitt með að læra, á sama hátt og versta fólk getur gert það án nokkurra vandkvæða.
Vega og meta umsækjendur eftir mannlegum þáttum en ekki tölum, sparar okkur margar skrámur, tugi þúsunda í sektum og línur í væli um “misbeitingu valds”.
Burt með ræfla sem vilja hefna sín fyrir einelti og erfiða æsku, sækja í skynsamara fólk og lögreglan mun hafa virðingu, en eins og staðan er í dag er líklega sniðugra að gefa í eða hlaupa burtu, a.m.k. fyrst sumarið er að koma og afleysingaliðið vill flexa vöðvana og taka út margra ára bælingu á næsta manni…
Hef einn lögreglumann þannig að ég myndi umsvifalaust ganga frá honum ef ég sæi hann óeinkennisklæddann, en líkurnar eru svona 80% að honum hafi verið sagt upp eftir að hafa reynt að ljúga uppá mig fyrir nokkrum árum, aldrei sést einkennisklæddur aftur svo ég viti amk.
Vá þessi grein er án vafa gerð fyrir hasshausa með 5 sek minni þar sem þetta eru endalausar endurtekningar á sömu 2 línunum: “ÚT MEÐ VANHÆFA EINSTAKLINGA MEÐ SJÁLFSMYNDARBRESTI OG VANDA VALIÐ Á UMSÆKENDUM”. Sjálfur nýfluttur úr kópavogi, og nógu oft lent í lögreglu til að dæma svona 8/10 hæfa einstaklinga þar, þrátt fyrir ásakanir rvk löggunnar að sú í “úthverfunum” sé mun verri þar sem hún fái ekki sama “action” niðrí bæ og miðbæjarlöggan.
Well ef þetta verður öllu lengra fæ ég lögregluna á mig fyrir að stuðla að sjálfsmorðum sökum leiðinda, og vona að einhver geti þýtt þetta á skiljanlegt mál takk ;)
my 2222222222 cents.