29. maí næstkomandi verður haldin í þriðja sinn Klaustur Offroad Challenge sem er 6 tíma endurokeppni sem menn keppa annaðhvort einir í liði er tveir saman.
Þessi keppni er orðin mjög vinsæl og í fyrra kepptu um 200 manns en í ár er búist við á allt að þriðja hundruð manna munu keppa.
— Keppnisform (Copy/paste) —
Raðað verður á rásstað eftir því hvenær menn skrá sig, fyrstir skrá fyrstir fá.
Ekið verður að lágmarki í 6 klukkustundir.
Menn geta ýmist verið einir eða þá í tveggja manna liði.
Keppendur fá afhenta nálgunarbólu sem tölvuskanni les í lok hvers hringjar.
Þessi nálgunarbóla verður að fylgja þeim ökumanni sem ekur í hvert skiptið.
Ekki er um aðra talningu að ræða þannig að ef nálgunarbólan týnist verða ekki fleiri hringir skráðir.
Keppendur bera alla ábyrgð á nálgunarbólan að hún fari í gegnum skannann.
Veitta verða eftirfarandi verðlaun:
Grjótið er veitt fyrir fyrsta sætið yfir heildina
1, 2 og 3 sæti fyrir liðakeppni
1, 2 og 3 sæti fyrir einstaklingskeppni
1 sætið í Bara Íslendingar (er háð því hvort að útlendingar taki öll efstu sætin líkt og gerðist 2003)
————————————————— —————
Hvet ég alla til að taka þátt í þessari stórskemmtilegu keppni.
<a href="http://www.ismennt.is/not/kjartanh/klaustur/skra ning.html“target=”_blank“>Skráning hér</a>
<a href=”http://www.ismennt.is/not/kjartanh/klaustur/“ta rget=”_blank">Heimasíða keppninnar</a