*Andvarp*
Ef þú ætlar að svara mér reyndu þá að hitta á réttan póst.
Volvo segirðu … bílar eru nú oftast MERKTIR hvað þeir heita og þótt þeir heiti kannski svipað eins og Volvo S80 og Volvo S80 T6 þá erum tvo mismunandi bíla að ræða. Ef ég mundi kaupa mér Volvo S80 T6 (272hö) og monsta mig það mikið af honum að vinur minn mundi hlaupa útí Brimborg og skella sér á einn Volvo S80 (180hö), væri það þá mér að kenna að hann hefði ekki gáð nóg og vel á hvernig bíl ég væri? Nei, það væri honun að kenna.
En svo er líka annað, ÞÚ fórst og keyptir leikinn handa bróður þínum þannig ÞÚ hefðir átt að lesa þér aðeins betur til áður en þú keyptir leikinn fyrst hann var kominn í öðruvísi pakkningar. BT er ekki skyldugt til að láta þig vita hvort þú sért að kaupa Evrópska eða Bandaríska útgáfu af DAoC, þeir selja bara leikinn. Til hvers heldurðu að allar þessar merkingar og Specs utan á kassanum séu, til skrauts? Nei, þær eru þarna til að láta þig vita hvaða vöru þú ert að farað kaupa og hvaða mininum specs leikurinn keyrir á. Ef þú t.d. ættir lélega tölvu en keyptir samt nýlegan leik sem virkaði ekki á tölvunni þinni þá væri það þér að kenna. Þannig að það voru bara þin mistök að lesa ekki utan á pakkningarnar áður en þú keyptir þær. Þannig vertu bara feginn að þú opnaðir þær ekki því annars hefirðu setið uppi með hann.
Eitt að lokum, þú náðir greinilega ekki hvaða pointi ég var að reyna að koma yfir til þín með fyrri póstinum. Þú varst að segja að þeir stæðu það fast á sínu að þeir hefðu eflast neitað að taka við leiknum til baka ef þú hefir verið búinn að opna hann. Já, þeir hefðu eflaust gert það því þeir verja sig sérstkalega gegn svoleiðis með því að setja svona lítinn gráan límiða (innsigli) sem segir Skýrum Stöfum að ef þú rífir þennan miða þá getirðu EKKI skilað vörunni. Geturðu rétt ímyndað þér að fólk mundi kaupa t.d. geisladisk, skrifa hann og skila honum svo of fá annann í staðinn ef þetta væri ekki? Þeir hafa RÉTT á því að neita að taka við opnum vörum til baka, það þýðir samt ekki að þeir myndu ekki gera það, reglur eru alltaf sveiganlegar svosem, en það er ekki til umræðu hérna.
Annarz bra, peace out.
Ph'nglui mglw'nafh Cthulhu R'lyeh wgah'nagl fhtagn