Ja, því miður þá eru ennþá töluverðir fordómar gegn tölvuleikjum og þá sérstaklega mmorpg leikjum hér á Íslandi og svo virðist sem stelpur eiga erfiðara en strákar að gera eitthvað sem er litið hornauga af jafnöldrum.
Auk þess þá held ég að flestar stelpur/konur sem spila mmorpg leiki á Íslandi spili WoW, því hann er einfaldlega vinsælastur og meiri líkur að einhver sem þær þekki hafi komið þeim inn í hann, og þar sem þær spila WoW nota þá líklega bara /blizzard áhugamálið og fara ekki einu sinni inn á þetta.
Bætt við 6. desember 2007 - 19:05 spila WoW nota þá líklega bara /blizzard áhugamáli
nota þær þá líklega, á þetta að vera