Er það ekki oftast þannig að fyrsti mmorgp leikurinn hefur mest áhrif og manni finnst hann þar af leiðandi bestur?
Ég á erfitt að velja milli UO og EQ þar sem þetta voru mínir fyrstu online leikir, UO var með frábært samfélag og meira eða minna laust við áreiti frá öðrum spilurum, '99 byrjaði ég svo að spila EQ og sökkti mér gjörsamlega í hann, meir en nokkurn annan leik þannig að hann verður að teljast “bestur” að mínu mati þar sem ég naut þess best að spila hann og entist langtum lengst í honum.
Eq2 var ekki nægilega góður, en alveg ágætur þó, WoW var að sama skapi ágætur en greip mig ekki meir en svo að ég hætti innan við tvemur vikum eftir að ég náði level 60. Entist innan við viku í Guild Wars….
Er í DDO betunni og er enn að móta mér skoðun, hefur fullt af flottum hlutum en að sama skapi marga mínusa.