Ættlaði að bæta við að ég er alfarið hættur að spila á Rubi-Ka 1.. Það er alltof mikið að sora liði þarna sem eru búnir að exploita sig uppúr öllu valdi, og verða því PAIN IN THE ASS þegar sagan fer í gang.
Why, vegna þess að þegar sagan fer af stað, verða ÖLL svæði sem eru ekki með 100% suppression gas í gangi PVP zone. Þá getur uber leet exploiterinn á lvl 200 komið og buffað þinn littla heiðarlega lvl 75 kall.
Já, það eru menn komnir fyrir ofan lvl 150. All margir infact. Þetta átti að taka fólk fleiri mánuði, en viti menn, einn mánuður og þá eru einhver gimp kominn á lvl 130.
Fyrir utan það, þá er mun betri stemning milli fólks á Rubi-ka 2. Mun minn af einhverjum þreitandi og kjaftforum pjökkum.
Eins og stendur er ég með minn eina character þar, Aeom2 á lvl 35 eftir mikið og strangt spilerí og er einnig guild leader í 20 manna, góðum hópi.
Ég vonast til að geta skrifað nokk góða grein eða guide, um hvernig sé best að spila Fixer. Vonandi kemur einhver með fleyri pósta um Enforcers, Traders og hvað það nú er.
Það er góður slatti af fólki að spila þetta hérna heima, og væri gaman að sjá þessa korka meira aktíva.