Safnaðu smá hóp (3-4+) og farðu inn í Crushbone. Mæli reyndar með að fá með þér wizard sem er kominn á a.m.k. 8 level.
Fínt er að campa uppi á Trainer Hill, en þangað kemstu með því að fara upp á hólinn strax til hægri þegar þú ert kominn inn í Crushbone. Á Trainer Hill, birtist af og til Orc Trainer ásamt því að Orc Centurions spawna þar reglulega. Orc Trainer'inn á það til að missa Shiny Brass Shield, sem er ansi góður skjöldur, bæði til brúks og til sölu.
Þegar þú ert kominn á 8-9 level, mæli ég með því að þú farir að Slaver mines í Crushbone. Þar fyrirfinnast óvættir eins og Orc Slavers, Orc Legionnaires og Orc Centurions.
Orc Slavers eru oft með lykla á sér, sem þú notar til að frelsa þræla. Þessir lyklar eru númeraðir, og eina leiðin til þess að vita hvaða þræll á að fá hvaða lykil, er að láta þá fá einn koparpening.
Kveðja,
Thrymill